Við erum að ráða í áhættu-og gæðadeild Deloitte

Deloitte · deloitte.is

Kópavogur, Kópavogsbær, Iceland Full-time 2 days ago
Workplace
On-site
Location
Kópavogur, Kópavogsbær, Iceland

Check your CV against this job

Free · No signup · A 0–100 ATS match score and the keywords you're missing.

Check my CV free

$14.99/month, cancel anytime. Already have an account? Log in

About the role

Job Description

Áhættu- og gæðadeild Deloitte (QRS) leitar að jákvæðum, drífandi, sjálfstæðum og metnaðarfullum liðsfélaga.

Starfið felur í sér að taka þátt í þeim fjölbreyttu verkefnum sem eru unnin innan deildarinnar. Starfið hentar vel þeim sem hafa áhuga á gæðamálum, bestun ferla og aukinni skilvirkni. Ekki er gerð krafa um reynslu af gæðamálum, við kennum á starfið.

Starfið hentar vel fólki sem er nýkomið úr námi.

Helstu verkefni meðal annarra:

* Þátttaka í innleiðingu á verkferlum (verklagsreglum og stöðlum )

* Skráning í gæðakerfi og áhættumat

* Eftirlit með reglufylgni og áhættumati

* Samþykki viðskiptavina og hlýtni við lög

* Mikil samskipti við önnur svið innan Deloitte

* Rýni ársreikninga og annarra gagna

Qualifications

* Háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s. viðskiptafræði og/eða önnur menntun

* Mjög góð samskiptafærni og vilji til samvinnu og að stuðla að góðum starfsanda

* Fagmennska, sjálfstæð og vönduð vinnubrögð mikilvæg

* Áhugi á að læra nýja hluti í tengslum við gæða- og reglufylgni

* Gagnrýnin hugsun og greiningarhæfni mikilvæg

* Gott vald á íslensku og ensku, bæði töluðu og rituðu máli skilyrði

Additional Information

Um teymið

Áhættu- og gæðadeild starfar þvert á önnur svið Deloitte og er þeim innan handar með ýmis konar mál og fylgni við lög og reglur. Við vinnum saman sem ein heild og störfum mikið með áhættu- og gæðadeildum annarra Norðurlanda.

Starfsþróun

Það er mikilvægt að muna að á fyrsta degi kann enginn allt og við trúum því að það sé ávallt rými til að læra og bæta við sig þekkingu. Þú lærir mikið af þeim fjölbreyttu verkefnum sem unnin eru í teyminu og færð góðan stuðning til vaxtar og þróunar í starfi.

Að auki bjóðum við upp á:

* Frábært mötuneyti með niðurgreiddum morgunmat og hádegismat

* Veglegan líkamsræktarstyrk, virkt starfsmannafélag og gott félagslíf

* Fyrirmyndar aðbúnað starfsfólks höfuðstöðvum fyrirtækisins á Dalvegi

* Sjálfboðastarf til áhrifa – launaður dagur til að sinna sjálfbærniverkefnum

* Fjölbreytt áhugamál samstarfsfélaga þvert á félagið t.d. hlaupahópur, golfklúbbur, fótbolti í hádeginu, og leikjaherbergi svo eitthvað sé nefnt

Við hlökkum til að fá umsóknina þína. Nánari upplýsingar um starfið veita Pétur Hansson ([email protected]) og Helen Breiðfjörð ([email protected]).

Tekið er á móti umsóknum (ferilskrá og kynningarbréfi) til og með 18. október 2026

Vilt þú hafa áhrif? Hjá Deloitte skiptir þitt framlag máli því saman, sem ein heild, vinnum við að því að hafa áhrif á viðskiptavini, samstarfsfélaga og samfélag. Þú færð tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum þvert á svið, starfsstöðvar og lönd, auka hæfni þína og færni og hafa góðan stuðning til vaxtar og þróunar í starfi.

Get matched & apply with FindAJobAI

Upload your resume once. We score every job against your profile, tailor your resume and cover letter, and autofill the application.